31.12.2008
Slökkvilið Akureyrar sendir landsmönnum öllum óskir um gleðilegt nýtt ár.
29.12.2008
Jólin hjá okkur voru með friðsælasta móti. Ekkert brunaútkall hefur orðið frá 20. desember og er það langt undir meðaltali. Íbúar á starfsvæði SA hafa því greinilega farið sérstaklega varlega um hátíðirnar þegar áhætta vegna kertaljósa og eldamennsku hefur verið í hámarki. Greinilegt er að öflugt forvarnarstarf hefur skilað árangri og full ástæða til að hrósa íbúum fyrir þennan góða árangur.
16.12.2008
Hjá Slökkviliði Akureyrar starfar kona að nafni Anna Gunnlaugsdóttir. Hún sér um ræstingar í hálfu starfi og skrifsfofustörf í hálfu starfi. Hún er einstakur gleðigjafi og hefur ráð undir rifji hverju. Í hádeginu í dag bauð hún upp á kreppumat fyrir þá starfsmenn sem vildu. Þetta reyndist dýrindis máltíð, fiskibollur með öllu tilheyrandi og apríkósugrautur með ís í eftirmat.
16.12.2008
Þann 15. desember undirrituðu Slökkvilið Akureyrar og Hjálparsveitarin Dalbjörg samstarfssamning. Samningurinn felur í sér að Hjálparsveitin Dalbjörg tekur að sér að aðstoða Slökkvilið Akureyrar við slökkvi- og björgunarstörf í Eyjafjarðarsveit og nágrenni.
12.12.2008
Í síðustu viku var klárað að heimsækja alla 3. bekki í grunnskólum hér á starfssvæði slökkviliðs Akureyrar. Var það liður í átaki Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Farið var yfir þær hættur sem geta skapast á aðventunni í sambandi við kerti, kertaskreytingar og jólaljós.
10.12.2008
Rétt eftir miðnætti í nótt barst slökkviliðinu tilkynning um mikinn eld við bæ í Arnarneshreppi norðan Akureyrar. Vegfarandi tilkynnti um brunann en gat ekki séð hvort hann var í íbúðar- eða útihúsum.
03.12.2008
Eldvarnir í leikskólum, Logi og Glóð.
Í síðust viku lauk heimsóknum okkar til elstu barnanna í öllum þeim leikskólum sem eru á okkar stafsvæði einnig fórum við í þrjá leikskóla í Dalvíkurbyggð. Þessar heimsóknir eru hluti af samstarfi milli elstu barnanna í leikskólunum, slökkvilið Akureyrar og Eignarhalsfélags Brunabótafélags Íslands.
17.11.2008
Vítisvika er þjálfunar og fræðsluvika fyrir nýjustu liðsmenn Slökkviliðs Akureyrar sem fram fór í síðustu viku. Markmiðið er að gera þá hæfari slökkviliðsmenn og undirbúa þá fyrir þau tilfelli sem bíða þeirra.
10.11.2008
Nýtt númerakerfi tekið í notkun.