01.11.2007
Aðalfundur Félags slökkviliðsstjóra var haldinn á Hótel Heklu 26. október sl. Auk aðalfundarstarfa flutti Brunamálastjóri erindi um helstu mál sem "brenna" á slökkviliðsstjórum, umræður voru fjörugar og sýndar voru myndir frá helstu brunum síðasta ár, þ.á.m. Hringrásarbrunanum hér á Akureyri. Á laugardeginum var síðan farið vítt um neðri hluta Árnessýslu og margt skemmtilegt skoðað, t.d. allur slökkvibílafloti svæðissins.
24.10.2007
Fyrirtækið Samteigur heimsótti okkur 18. okt. 2007 og kynnti fyrir okkur hitamyndavélar. Með í för var sölumaður frá fyrirtækinu í Þýskalandi og slökkviliðsmaður frá USA sem kynnti notkun vélarinnar, kosti og galla. Kveikt var upp í gámnum okkar til að fá raunverulegar aðstæður.
16.10.2007
Sjúkrabílanefnd Slökkviliðs Akureyrar fór á föstudaginn 12. okt. í heimsókn til Sigurjóns Magnússonar á Ólafsfirði sem er að smíða sjúkrabíla fyrir Rauða Krossinn. Teknar voru nokkrar myndir í ferðinni. Myndir IE.
12.10.2007
Slökkvilið Akureyrar og leikskólar svæðisins hófu formlegt samstarf í vikunni með undirritun samkomulags um samstarfsverkefni um eldvarnir og fræðslu. Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands hefur látið útbúa vandað og fjölbreytt efni sem slökkviliðin um land allt geta notað í þessu verkefni. Markmið verkefnisins er þríþætt. Í fyrsta lagi að tryggja að eldvarnir í leikskólum sé ávallt með besta móti. Í öðru lagi að tryggja elstu börnunum fræðslu um eldvarnir og kynna fyrir þeim starf slökkviliðsmanna og búnað. Í þriðja lagi að minna foreldra og forráðamenn barnanna á mikilvægi þess að hafa eldvarnir heimilisins í lagi og veita leiðbeiningar um hvernig ná má því marki.
03.10.2007
Mikil námskeiðstörn er nú á haustdögum hjá nokkrum liðsmönnum Slökkviliðs Akureyrar. Núna eru 3 menn á grunnnámskeiði í sjúkraflutningum (EMT-Basic) sem fram fer á Sjúkrahúsinu á Akureyri á vegum Sjúkraflutningaskólans. Tveir félagar eru einnig farnir suður til Keflavíkur (varnarsvæði) á 7 vikna námskeið fyrir atvinnuslökkviliðsmenn á vegum Brunamálaskólans. Í enda október byrjar svo 5 vikna neyðarflutninganámskeið (EMT-I) sem er framhaldsnámskeið fyrir sjúkraflutningamenn. Fjórir frá SA taka þátt í því námskeiði sem fer fram á Sjúkrahúsi Akureyrar á vegum Sjúkraflutningaskólans.