31.01.2006
Nú hafa verið búin til merki fyrir sjúkraflutningamenn. Merkin sýna menntunarstig þess sem ber það og er einungis ætluð starfandi sjúkraflutningamönnum. Nú er Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna að vinna að því að fá merkin skráð sem réttindamerki.
24.01.2006
Í gær var sjúkraflug til Grænlands sem öllu jöfnu væri ekki í frásögur færandi með tilliti til þess að slökkviliðsmenn Slökkviliðs Akureyrar hafa farið í 29 sjúkraflug sem af er ársins. Eini munurinn í þessu sjúkraflugi er að slökkviliðsstjórinn á Akureyri fór með í flugið til þess að kynna sér starfsumhverfi sinna manna í þessari þjónustu slökkviliðsins...................................
21.01.2006
Árni Ingólfsson slökkviliðsmaður hjá Slökkviliði Akranes er í heimsókn hjá okkur í dag. Hann var nátturulega "græjaður" í almennileg föt og settur á bílinn með strákunum. Hann ákvað þar sem að hann er í helgarferð hér á Akureyri að lýta til okkar til kynna sér starf "alvöru slökkviliða".

19.01.2006
Í dag 19.jan var haldin í Síðuskóla rýmingaræfing. Brunavarnarkerfi skólans var gangsett rétt eftir kl: 10:00 og Neyðarlínan 112 boðar SA kl: 10:05 með venjulegum hætti. Allir nemendur og starfsfólk skólans yfirgáfu stofnunina eftir fyrirfram ákveðnu kerfi sem miðar að því að enginn gleymist eða verði útundan. Áætlaður rýmingartími á skólanum var rúmar 3 mín, en þegar allir höfðu safnast saman, á fyrirfram ákveðnum stöðum, voru liðnar um 4 mín frá því að kerfið fór í gang.
Mikilvægt er að halda slíkar æfingar, hvort sem um stóra eða litla stofnun er að ræða. Nemendur og starfsfólk læra að þekkja hávaðan í viðvörunarkerfinu, vita betur hvað skal gera, hver gerir hvað og hvar eigi að safnast saman þegar út er komið. Aðkoma viðbragsaðila að slíkum vetvangi er mun betri því þegar komið er á staðinn þá er stjórn á þeim sem eru fyrir utan og það er vitað hvort einhver sé ennþá inn í byggingunni.
Eldvarnareftirlit SA aðstoðar við gerð rýmingaráætlana og veitir ráðgjöf varðandi æfingar.
19.01.2006
Nú stendur yfir endurmenntun í sjúkraflutningum undir handleiðslu Sjúkraflutningaskólans á slökkvistöðinni. Þessi endurmenntun er til að viðhalda réttindum í grunnmenntun, læra og tileinka okkur nýjungar og breytingar sem hafa orðið á milli ára...............
14.01.2006
Mikið hefur verið að gera í sjúkraflugi í dag eða fjögur flug. Þar af voru þrjú þeirra flug sem varð að sinna strax. Flugfélag Íslands sinnti öllum flugunum og var nægur flugfloti til staðar.
09.01.2006
C-vakt æfði notkun stoða í síðustu viku. Þeir voru ánægðir með þær og virðist þetta virka sérlega vel t.d. við bílveltur. Stoðirnar eru frá Holmatro í Hollandi eins og annar klippubúnaður hjá okkur. En myndirnar tala sínum máli.