05.01.2006
Um helgina munum við auglýsa í Mbl og Fréttablaðinu laus störf hjá Slökkviliði Akureyrar. Ástæða þessara ráðninga er fjölgun í slökkviliðinu. Fjölgað verður í varðliði þ.e. á vöktum. Eftir fjölgun munum við tryggja 6 menn á vakt hverju sinni, allan sólarhringinn..........................
03.01.2006
Áramótin voru róleg hjá okkur slökkviliðsmönnum á Akureyri. Ekkert brunaútkall var á gamlárskvöld og aðeins eitt eldboð á nýjarsnótt sem átti sér eðlilegar skýringar. Nokkuð var að gera í sjúkraflutningum og bæði var sjúkraflug á Vopnafjörð á Gamlárskvöld og eins á Bíldudal á nýjársnótt. Seinkun á því flugi tengdist okkur ekki því við vorum yfirmannaðir á næturvaktinni og voru því læknir og sjúkraflutningamaður komnir á flugvöll um 10 mínútum eftir að staðfest var að sjúkraflug lægi fyrir.
31.12.2005
Árið sem er að líða hefur verið mjög viðburðaríkt fyrir Slökkvilið Akureyrar. Breytingar í búnaðar-, skipulags- og menntunarmálum slökkviliðsins sem ég fjölyrði ekki um hér............................
30.12.2005
Vinna slökkviliðsmanna okkar í Hrísey er til fyrirmyndar. Nú hafa þeir eins og undanfarin ár lokið við að heimsækja öll heimili þar sem föst búseta er. Tilgangurinn er að endurnýja rafhlöður í reykskynjurum. Eins skoða þeir slökkvitæki og slökkvibúnað sem er staðsettur á heimilunum................
30.12.2005
Á þessum árstíma eru tíðar fréttir af íkveikjum og vandræðum vegna flugeldafikts hjá börnum og unglingum. Í Reykjavík hefur t.d. verið mikið annríki hjá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðissins vegna bruna í ruslagámum og brunum tengdum flugeldum.
Hér á Akureyri og nágrenni hefur þetta verið með öðrum og betri brag. Ekkert útkall er ennþá skráð sem rekja má til nálægðar áramóta og aðeins vitað um eitt tilfelli þar sem tveir drengir sprengdu rúðu með fikti með flugelda. Við teljum að þessu leyti virðist samfélagið hér á Akureyri hafa náð þroska og ástæða til að þakka foreldrum fyrir að vinna með okkur með því að fylgjast með því hvað börnin eru að gera.
28.12.2005
Jólahátíðin var róleg hjá Slökkviliðinu á Akureyri. Frá Þorláksmessu og fram á þriðjudag voru aðeins skráðir tveir neyðarflutningar, þar af annar eftir harðan árekstur á Þorláksmessu. Nokkrir almennir flutningar hafa verið en þó færri en oftast áður um jól. Eitt sjúkraflug var á jóladag frá Egilsstöðum til Reykjavíkur og fór einn maður frá okkur í það ásamt lækni frá FSA.
23.12.2005
Við óskum lesendum okkar gleðilegra jóla og farsæls nýs árs með von um að jólahátíðin verði friðsæl.
22.12.2005
Eins og bæjarbúar og aðrir sem leið sína hafa lagt á Glerártorg núna undanfarna daga hafa séð, hafa slökkviliðsmenn frá Slökkviliðinu á Akureyri verið þar við sölu á öryggisvörum fyrir jólin. Þessi sala er á vegum Félags slökkviliðsmanna á Akureyri og er í tvennum tilgangi. Annars vegar að minna fólk á nauðsyn þess að vera með eldvarnir í lagi heima fyrir og hins vegar fjáröflun fyrir félagið.
21.12.2005
Bæklingurinn "Eftir áfallið" er kominn á heimasíðuna á PDF formi. Smellið á hlekkin "leiðbeiningar við áföll" hér til vinstri.
20.12.2005
Nú er búið að setja gamla Weaponinn í jólabúninginn. Þegar tæki, eins og "gamli rauður" eins og við köllum hann, er búið að skila sýnu hlutverki sem útkallsbíll, þá verður að finna ný not. Það er því tilvalið að "viðran" um jólin, á viðeigandi hátt. Við vonum að bæjarbúum finnist hann jafn flottur og okkur hér hjá SA.