Fréttir

Róleg og þægileg helgi

Helgin hjá slökkviliði Akureyrar hefur verið róleg og þægileg.

Hús mikið skemmt eftir eldsvoða

Slökkvilið Akureyrar var kallað út kl. 15:09 í dag vegna reyks frá húsinu við Aðalstræti 13.  Þegar dælubíll kom á staðinn var talsverður eldur í mannlausri íbúð á jarðhæð í norðurenda hússins en fjórar íbúðir eru í húsinu. 

Mikið annríki um helgina

Mikið annríki var hjá Slökkviliði Akureyrar um helgina.  Bæði voru það verkefni vegna mikils fjölda gesta í bænum í tengslum við "Bíladaga" en einnig önnur verkefni.  Hvorki voru þó útköll vegna bruna eða alvarlegra slysa.

Kona lést í eldsvoða

Um kl. 8:45 í morgun var tilkynnt um eld í húsi á Kljáströnd í Grýtubakkahreppi.  Slökkvilðið á Grenivík og Slökkvilið Akureyrar voru kölluð út.  Sendir voru dælubílar frá báðum liðum á vettvang auk sjúkrabíls frá Akureyri.

Ammoníaksleki á Grenivík

Ammoníakleki kom upp í togaranum Frosta sem liggur við bryggju á Grenivík. Þar er unnið að viðhaldi. Tilkynning barst  um kl. 18:30 í kvöld. Slökkvilið Akureyrar og Slökkvilið Grenivíkur eru á staðnum og vinna að því að loka fyrir lekann. 

Eldur í Norðlenska

Rétt fyrir klukkan 19 í kvöld var Slökkviliðið á Akureyri kallað út að kjötvinnslu Norðlenska við Grímseyjargötu.  Eldboð barst stjórnstöð Öryggismiðstöðvar og þegar vaktmaður kom á staðinn var talsverður reykur í miðrými hússins.

Höfuðatriði

Í dag fóru tveir sjúkraflutningamenn frá slökkviliði Akureyrar ásamt einum lögreglumanni og heimsóttu börn í 5. – 9. bekk í Lundarskóla.  Erindið var að ræða við börnin um mikilvægi þessa að nota reiðhjólahjálma við hjólreiðar og almennt um hjálmanotkun þegar að verið er á línuskautum, hjólabrettum og hverslags búnaði með hjólum.

Gaman gaman....

Í dag tökum við á móti tæpum 300 börnum á slökkvistöðina.  Það er nokkurs konar uppskeruhátíð verkefnissins um Loga og Glóð sem hefur verið keyrt með öllum 6 ára börnum og leikskólum bæjarins í vetur. Við bíðum spennt eftir þessu, því þetta er svooo gaman.

Gámur undir eiturefnabúnað

Slökkvilið Akureyrar hefur fengið nýjan gám undir mengunar og eiturefnabúnað.

Fólk fast í stólalyftu

Um klukkan hálfþrjú var björgunarsveitin Súlur kölluð út vegna fólks sem var fast í stólalyftunni í Hlíðarfjalli.  Svo vildi til að á vaktinni hjá Slökkviliðinu voru þrír fjallabjörgunarmenn úr Súlum og fóru þeir á staðinn til aðstoðar.