Umsóknir berist hér - akureyri.is
Slökkvilið Akureyrar óskar eftir að ráða verkefnastjóra á skrifstofu Slökkviliðs Akureyrar. Um 100% ótímabundið starf er að ræða í dagvinnu.
Um nýtt starf er að ræða og getur það tekið þróun í samræmi við það.
Slökkvilið Akureyrar sinnir slökkvi- og björgunarstarfi, eldvörnum, sjúkraflutningum og almannavörnum.
Helstu verkefni eru:
- Viðvera í móttöku og símsvörun.
- Hefur umsjón með miðlægu netfangi stofnunarinnar, svarar fyrirspurnum, afgreiðir erindi eða kemur þeim áfram til þar til bærra aðila.
- Umsjón með heimasíðu og innri vef.
- Þróar og fylgir eftir umbótum að tekjuöflun stofnunarinnar.
- Lyklun og samþykkt reikninga. Sendir út reikninga og annast innheimtu vegna sjúkraflutninga, sjúkrafluga og annarra verkefna.
- Yfirferð á tímaskráningum starfsmanna. Heldur utan um aukatíma starfsmanna og sér til þess að þeir séu rétt skráðir.
- Úrvinnsla tölfræðilegra gagna, tekur saman tölulegar upplýsingar um starfsemi stofnunnarinnar, s.s. tölfræði yfir útköll.
- Sinnir verkefnum í samstarfi við eldvarnareftirlit og stjórnendur sem lúta að skipulagningu námskeiða og utanumhaldi forvarnarverkefna, s.s. leikskólaheimsóknir.
- Tekur saman og afhendir gögn til samstarfsaðila, s.s. til HMS, SAK.
- Aðstoðar við auglýsingu starfa, útfyllingu ráðningarsamninga og utanumhald ráðningargagna.
- Hefur umsjón með birtingu gæðaskjala.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. viðskiptafræði.
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er æskileg.
- Þekking og reynsla af upplýsingamiðlun er æskileg.
- Þekking og reynsla af áætlanagerð er æskileg.
- Samskiptafærni og rík þjónustulund.
- Metnaður og vilji til að ná árangri.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Greiningar- og skipulagshæfni.
- Almenn tölvukunnátta, færni í helstu ritvinnsluforritum og Excel, og burðir til að tileinka sér nýjungar á því sviði.
- Þekking og reynsla af vefumsjónarkerfum er kostur.
- Góð færni í talaðri og ritaðri íslensku og ensku.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Rúnar Ólafsson Slökkviliðsstjóri í síma 461-4201.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 19. mars 2023
Sækja um hér