Þegar slökkviliðið kom á staðinn fóru reykkafarar inn í íbúðina. Enginn eldur reyndist í íbúðinni en reykurinn reyndist koma frá potti á eldavél þar sem kjöt var mikið brunnið og mikil bræla í íbúðinni.
Íbúðin var reykræst. Ljóst er að tjón er nokkuð af völdum reyksins.