02.01.2011
Síðastliðna nótt var liðið einnig kallað út vegna elds í ruslagámi og einnig á Gamlárskvöld. Um helgina hafa þá orðið fjórir brunar í ruslagámum á fjórum stöðum í miðbænum. Svo virðist sem um íkveikjur sé að ræða i öllum þessum tilfellum og er það litið mjög alvarlegum augum ef það reynist rétt. Allir þessir gámar hafa staðið við hús og ávallt er hætta á að slíkur eldur breiðist út ef hann nær að magnast. Það sem af er ári hefur verið meira að gera í eldútköllum en sjúkraútköllum en óvenju fáir sjúkraflutningar hafa verið það sem af er árinu.