Starfsmenn urðu varir við eldinn og brugðust strax við og komu bílnum út. Farmurinn var losaður á plani utanhúss og byrjuðu starfsmenn að slökkva eldinn og kölluðu til Slökkvilið. Nokkur eldur var í hrúgunni og tók nokkra stund að slökkva hann. Skemmdir urðu ekki miklar nema á pappírnum sem brann og blotnaði.