Slökkvilið Akureyrar óskar eftir starfsmönnum í stöður slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Um er að ræða störf í vaktavinnu við sjúkraflutninga, slökkvistörf og reykköfun, björgun og neyðarflutninga.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is
Umsóknarfrestur er til 19. desember 2012
Þorbjörn Guðrúnarson
Slökkviliðsstjóri