Slökkvilið Akureyrar óskar eftir að ráða slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn til starfa í fastar stöður. Um er að ræða sjúkraflutninga, slökkvistörf og önnur almenn störf slökkviliðsins. Vinnufyrirkomulag er vaktavinna.
Þar sem hallar á stöðu kvenna hjá slökkviliðinu, eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um.
Helstu verkefni eru:
Menntunar- og/eða hæfniskröfur:
Framangreindum hæfniskröfum er ekki raðað eftir mikilvægi. Akureyrarbær áskilur sér rétt til að óska eftir umsögnum frá fyrri vinnuveitendum sem og rétt til bakgrunnskoðunar umsækjenda hjá Ríkislögreglustjóra.
Með umsókn þarf að skila inn eftirfarandi fylgigögnum:
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir: Gunnar R Ólafsson, varaslökkviliðsstjóri í síma 461-4202 eða á gunnarr@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 22. desember 2021
Inntökuskilyrði má sjá HÉR