Þegar slökkvilðið kom á vettvang var mikill reykur í íbúðinni og lagði reyk út um brotinn glugga á vesturhlið hússins. Tveir reykkafarar fóru strax inn í íbúðina sem reyndist mannlaus. Eldur logaði í sófa og sjónvarp og tók skamma stund að slökkva hann. Íbúðin var síðan reykræst. Lítill reykur fór í aðrar íbúðir enda notaður yfirþrýstingur við slökkvistarfið. Flestir aðrir íbúar hússins voru komnir út þegar slökkviiðið kom á staðinn.