Heimsóttum við í kringum 350 börn. Hver heimsókn tók um klukkustund. Alls staðar var mjög vel tekið á móti okkur og sýndu börnin þessu verkefni mikinn áhuga. Farið var yfir verkefnið með börnunum í heild sinni. Einnig var þeim kennt hvert þau eigi að leita eftir aðstoð ef eitthvað kemur upp á þ.e. að hringja í 112 – hvernig þau eigi að bregðast við ef eldur kemur upp. Börnin fengu að sjá hvernig slökkviliðsmaður lítur út þegar að hann er klæddur í fullan skrúða, þ.e. í slökkvigalla og með reykköfunartæki á sér. Eftir að hafa rætt við börnin inni þá var haldið út og slökkviliðsbifreið skoðuð.
Öll börnin fengu afhentar möppur með verkefnum og viðurkenningarskjal um þátttöku þeirra í þessu verkefni.
Tveir starfsmenn slökkviliðsins, einn starfsmaður eldvarnareftirlits og einn slökkviliðsmaður, fóru í þesar heimsóknir í hvert skipti. Einnig voru Logi og Glóð með í för og vöktu þau mikla lukku hjá börnunum.
Meðfylgjandi myndir eru frá heimsóknunum.