kl 22:15 var slökkvilið Akureyrar kallað að Rosenborg, eldvarnarkerfi hafði þá farið í gang og þegar öryggisverðir komu á staðinn tók reykur á móti þeim í kjallara húsins. Þegar slökkvilið kom á vettvang fóru reykkafarar inn og slökktu eld sem var minniháttar en töluverður reykur hafði myndast frá eldinum. Rýmið var reykræst með reykblásurum. Engin var í húsinu þegar eldurinn kom upp en í þessum hluta húsins er punkturinn með starfsemi sína. Ekki urðu neinar teljandi skemdir.