Reykkafarar fóru í kjallarann og fundu þar upptök reyksins en kviknað hafði í hárþurrku. Talsvert sót fór um kjallaran og reykur upp á efri hæðir. Slökkviliðið reykræsti húsnæðið.
Þetta er í annað sinn sem kviknar í Lundi en á áttunda áratug síðustu aldar kom upp eldur í súrheysturni sem nú hefur verið rifinn. Þá var ennþá búskapur í Lundi. Síðan keypti Hjálparsveit skáta húsnæðið og var þar til ársins 2001 en síðan var þar búð fyrir hestamenn þar til fyrir 3 árum að þar var sett upp jógastofa.