Eldvarnir heimilisins
Eru eldvarnirnar í lagi á þínu heimili?
Eldvarnirnar miða fyrst og fremst að því að tryggja líf þitt og heilsu. Í öðru lagi geta eldvarnir dregið verulega úr tjóni á eignum þínum. Þú þarft fyrst og fremst að hafa eftirfarandi til staðar og í lagi:
- Reykskynjara. Nægjanlega marga og rétt staðsetta. Þekkingu á fyrstu viðbrögðum.
- Flóttaleiðir, nægilega margar og greiðfærar.
- Slökkvibúnað af réttri gerð og rétt staðsettan.
- Mundu símanúmer neyðarlínunnar 112.
Ef þú býrð í fjölbýlishúsi þá á íbúðin þín að vera sjálfstætt brunahólf. Veggir, loft, gólf og hurðir að sameign, eiga að koma í veg fyrir útbreiðslu elds á milli íbúða. Ef þú býrð í gömlu fjölbýlishúsi og hefur áhyggjur af eldvörnum og öryggi þínu skaltu hafa samband við okkur og leita ráða.