Laus störf hjá Slökkviliði Akureyrar

Slökkvilið Akureyrar óskar eftir að ráða slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn með reynslu til starfa í fastar stöður. Um er að ræða sjúkraflutninga, slökkvistörf og önnur almenn störf slökkviliðsins. Vinnufyrirkomulag er vaktavinna.

Þar sem hallar á stöðu kvenna hjá slökkviliðinu, eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um.

Helstu verkefni eru:

  • Útköll og æfingar vegna slökkviliðs.
  • Sjúkraflutningar, þjálfun, æfingar og endurmenntun.
  • Umhirða tækja og búnaðar Slökkviliðs Akureyrar.

Menntunar- og/eða hæfniskröfur:

  • Gild ökuréttindi til að stjórna vörubifreið (C-réttindi).
  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærileg menntun og reynsla.
  • Jákvætt hugarfar og færni í mannlegum samskiptum.
  • Þær/þeir sem verða ráðnar/-ir til starfa sem slökkviliðsmenn skulu hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og ekki vera haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
  • Standast þarf þrekpróf og læknisskoðun, auk annarra inntökuprófa.
  • Menntun og reynsla af störfum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna er kostur.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
  • Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 8.gr. reglugerðar nr.792/2001 um Brunamálaskólann og réttindi og skyldur slökkviliðsmanna.

Framangreindum hæfniskröfum er ekki raðað eftir mikilvægi. Akureyrarbær áskilur sér rétt til að óska eftir umsögnum frá fyrri vinnuveitendum sem og rétt til bakgrunnskoðunar umsækjenda hjá Ríkislögreglustjóra.

Með umsókn þarf að skila inn eftirfarandi fylgigögnum:

  • Prófskírteinum.
  • Ljósriti af ökuskírteini.
  • Ökuferilsskrá.
  • Almennri ferilskrá.
  • Kynningarbréf
  • Almennt vottorð frá lækni sem staðfestir að viðkomandi megi fara í þrekpróf hjá slökkviliðinu, sé ekki litblindur og að sjón og heyrn séu í lagi.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Rúnar Ólafsson slökkviliðsstjóri í síma 461-4202.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2024.

Sækja um.