Ástæða rafmagnsleysisins var að 11 þúsund volta kapall brann í spennistöð við Urðargil. Þegar starfsmenn Norðurorku komu í spennistöðina var nokkur reykur í henni og var slökkviliðið kallað út til að reykræsta stöðina. Eftir að mesti reykurinn hafði verið blásið út gátu starfsmenn Norðurorku komið rafmagni á aftur. Skemmdir urðu ekki teljandi.
Mynd af heimasíðu Norðurorku.