11.03.2009
Ekki er langt um liðið frá því að slökkviliðið fór í eld þar sem fundust 25 gaskútar innan dyra.
25.02.2009
Eins og víða annars staðar fjölmenntu börnin á slökkvistöðina í morgun og sungu fyrir starfsmenn. Þau voru mörg í flottum búningum og báru sig vel þrátt fyrir kulda og hríð. Frábær frammistaða hjá þeim !!
24.02.2009
Í brunanum í Hrafnabjörgum í síðustu viku kom sér vel keðjusögin okkar.
17.02.2009
Í morgun var slökkvilið á Akureyri kallað að einbýlishúsi við Hrafnabjörg á Akureyri vegna elds. Mikill eldur var í húsinu þegar slökkviliðið kom á vettvang en slökkvistarf tók tæpa tvo tíma. Einn maður var í húsinu þegar eldurinn kom upp og var hann fluttur á sjúkrahús vegna brunasára og reykeitrunar.
04.02.2009
Í janúar luku 34 starfsmenn Slökkviliðs Akureyrar sem starfa við sjúkraflutninga, námskeiði í sérhæfðri endurlífgun, ILS (Immediate Life Support) hjá Sjúkraflutningaskólanum. Námskeiðið var liður í árlegri endurmenntun sjúkraflutningamanna.
29.01.2009
Á síðasta ári kom til okkar Telma Sveinsdóttir, hún stundaði þá Mastersnám í Mannauðsstjórnun við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
26.01.2009
Ársskýrsla slökkviliðs Akureyrar er komin út.
16.01.2009
Í dag var undirrituð Brunavarnaáætlun slökkviliðs Akureyrar.
07.01.2009
Útköll hjá slökkviliði Akureyrar 2008 voru 2,263 talsins og er það fjölgun um 119 útköll á milli árana 2007 og 2008 eða um 5.5%.
07.01.2009
Um kl. 22 í gærkvöldi var slökkviliðið kallað út vegna elds í ruslakari sem stóð við Leikskólann Kiðagil. Mikill eldur var í gámnum og litlu munaði að eldur bærist í sjálfan leikskólann en rúða við gáminn sprakk við hitann og barst nokkur reykur inn í skólann.