Um liðna helgi fóru tveir starsfmenn liðsins út í Grímsey með þjálfunaræfingu. Í leiðinni var farið yfir húsnæði liðsins í eyjunni og þar tekið til. Björgunarfélagið í eynni verður í húsnæðinu ásamt slökkviliðinu og var því unnið í uppsetningu búnaðar þeirra í húsnæðinu. Loftpressa fyrir reykköfunarkúta var sett út í eyju og er unnið að frekari framgangi mála þar.
Þorbjörn Guðrúnarson
Slökkviliðsstjóri.